Í júnílok handtók lögreglan í Málaga á Suður-Spáni sautján ára gamlan Norðmann á flugvellinum þar í borginni samkvæmt beiðni lögreglu í Noregi sem hafði þá fengið gefna út handtökuskipun á hendur honum vegna máls sem hún telur snúast um pantað manndráp á Kýpur. Handtökur í málinu urðu fleiri er frá leið.