Skjálfti sem varð í Langjökli klukkan rúmlega tvö í dag fannst vel í nágrenni jökulsins. Kolbrún Ósk Sæmundsdóttir, íbúi á Hjarðarlandi í Bláskógabyggð, var vel vör þegar skjálftinn reið yfir.„Ég var bara nýsest í sófann og svo heyrist bara hvín. Fyrst hélt ég reyndar að það væri einhver að koma í hlaðið en svo sló stofuklukkan bara óvænt og það glamraði í gleri í skápum og hristist hressilega.“Skjálftinn var af stærðinni 4,2 og er stærsti skjálfti á svæðinu frá árinu 2022. Skjálftanum hafa fylgt tugir eftirskjálfta. Kolbrún segist ekki oft verða vör við skjálfta á svæðinu og segist hún sjálf vera nokkuð róleg þó að henni sé almennt ekki vel við skjálfta.„Ég er alveg slök yfir þessu svo sem. Maður verður ekkert oft var við svona. Þannig lagað hef ég engar áhyggjur, án þess að ég viti nokku