Síðustu daga hefur mikið verið fjallað um deilur innan SÁÁ. Hátt settir stjórnendur hafa nýlega sagt upp störfum og stór hópur starfsmanna lýsti yfir vantrausti á stjórn samtakanna í síðustu viku.Hvað hefur gengið á og um hvað snúast deilurnar innan SÁÁ? AFSAGNIR HÁTT SETTRA STARFSMANNA Í byrjun ágúst var tilkynnt um að forstjóri SÁÁ, Ragnheiður Hulda Friðriksdóttir, væri að láta af störfum.Í framhaldinu hættu líka Þóra Björk Ingólfsdóttir, fagstjóri á meðferðarstöðinni Vík, og Valgerður Rúnarsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga.Heimildir fréttastofu herma að auk þess séu læknir, fagstjóri lækninga og fagstjóri sálfélagslegrar meðferðar á sjúkrahúsinu Vogi komnir í veikindaleyfi. Hvað eru SÁÁ? SÁÁ eða Samtök áhugafólks um áfengis- og fíknivandann eru félagasamtök sem berjast gegn áfengis-