Duterte ber fyrir sig minnisleysi og vill að réttarhöldum verði aflýst

Rodrigo Duterte, fyrrverandi forseti Filippseyja, ber fyrir sig minnisleysi við málarekstur gegn honum fyrir Alþjóðlega sakamáladómstólnum í Haag, þar sem hann sætir ákæru fyrir glæpi gegn mannkyni. Honum er gefið að sök að hafa fyrirskipað að þúsundir yrðu teknar af lífi án dóms og laga í stríði hans gegn fíkniefnum. Réttarhöld yfir honum eiga að hefjast 30. nóvember en lögmannateymi hans vegur nú og metur hvort fært sé að rétta yfir honum. Í réttarskjali sögðu lögmenn hans nýverið að Duterte „þjáist af umtalsverðu minnisleysi sem gerir honum ókleift að muna upplýsingar sem honum voru nýlega látnar í té og að kalla fram minningar með áreiðanlegum hætti“.Teymi hans segir ómögulegt fyrir hann að gefa lögmannateyminu fyrirmæli um hvernig reka skuli málsvörn hans, þar sem hann gleymi oft og t
Duterte ber fyrir sig minnisleysi og vill að réttarhöldum verði aflýst

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd