Bryndís Haraldsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur lagt fram fyrirspurn á þingi um Bókasafnssjóð höfunda. Henni er beint til Loga Einarssonar menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.Í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar eru framlög til Bókasafnssjóðs skorin niður um rúmlega áttatíu milljónir. Þau voru 224,5 milljónir á síðasta ári en eru áætluð 142,3 milljónir í fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár. Þetta hafa meðal annarra barnabókahöfundar gagnrýnt, fjölmiðlar fjölluðu til dæmis um harðorða Facebook-færslu Gunnars Helgasonar. PISA-NIÐURSTÖUR SÝNI AÐ STYÐJA ÞURFI ÚTGÁFU BARNABÓKA Spurð hvort hún hafi áhyggjur af stöðu barnabókaútgáfu og lesskilningi barna svarar Bryndís því til að allir stjórnmálamenn og þjóðin í heild ættu að hafa áhyggjur.„Við höfum bestu sönnunina fyrir því