Jarðskjálfti, 4,2 að stærð sem varð í vestanverðum Langjökli í dag, fannst víða á Suðvesturlandi, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands. Síðast varð skjálfti af þessari stærð í júní 2022 en sá mældist 4,6 að stærð.Nokkrir minni eftirskjálftar hafa fylgt, sá stærsti 2,3 að stærð. Sigríður Magnea Óskarsdóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir ekki óþekkt að skjálfti af þessari stærðargráðu mælist á svæðinu. Virkni hafi verið töluverð í og við Langjökul á þessu ári.