Áframhaldandi landris undir Svartsengi

Landris undir Svartsengi hefur mælst um fimm sentimetrar undanfarna þrjá mánuði og líklegasta sviðsmyndin er áfram að kvikuhlaup verði yfir í Sundhnúksgígaröðina sem gæti leitt til eldgoss. Þetta kemur fram í uppfærðu hættumati Veðurstofu Íslands.Ekki er hægt að segja til um hvenær slíkur atburður gæti orðið.Þrýstingur byggist enn upp á nokkurra kílómetra dýpi en eftir því sem lengra líður frá síðasta gosi eykst óvissa um tímasetningu þess næsta.„Gera þarf áfram ráð fyrir stuttum fyrirvara, líkt og fyrir fyrri gos á Sundhnúksgígaröðinni.“Guðmundur Bergkvist
Áframhaldandi landris undir Svartsengi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd