Jarðskjálfti 4,2 að stærð var í vestanverðum Langjökli klukkan átján mínútur yfir tvö. Þetta er stærsti skjálfti á svæðinu síðan í júní 2022. Sá skjálfti var 4,6 að stærð. Sigríður Magnea Óskarsdóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir ekki óþekkt að skjálfti af þessari stærðargráðu mælist á svæðinu. Á þessu ári hafi verið töluverð virkni í Langjökli, sérstaklega í Þórsjökli og Geitlandsjökli, sem eru aðeins sunnar en þessi skjálfti varð. Síðast varð skjálfti á svipuðum slóðum og þessi í dag, 31. ágúst, þá 2,4 að stærð. Jarðskjálftinn varð í vestanverðum Langjökli.Veðurstofa Íslands