Norsk lögregluyfirvöld gerðu húsleit í höfuðstöðvum fjarskiptafélagsins Telenor, því stærsta í Noregi, vegna gruns um að fyrirtækið sé samsekt í glæpum herforingjastjórnar Mjanmar gegn mannkyni. Viðskiptavinir dótturfélags Telenor í Mjanmar, TLM, lögsóttu móðurfélagið nýlega og sökuðu það um að láta herforingjastjórninni í té persónurekjanleg gögn um þá. Þeir telja að gögnin hafi verið notuð til þess að elta uppi, handtaka og dæma til fangelsis þá lýðræðissinna sem buðu herforingjastjórninni byrginn með mótmælum. Tvær mismunandi lögreglustofnanir í Noregi, öryggislögreglan, PST, og rannsóknarlögreglan, Kripos, sem sérhæfir sig aðallega í skipulagðri glæpastarfsemi, voru með mál Telenor til rannsóknar. Tímabilið sem er til rannsóknar er febrúarbyrjun 2021 til marsmánuðar árið 2022. Mjanmars