Þrír unglingsdrengir sakaðir um aðild að ráðabruggi um launmorð

Þrjú norsk ungmenni voru dregin fyrir dóm í dag í tengslum við skipulag á launmorði í Bretlandi sem tengist sænsku glæpasamtökunum Foxtrot. Drengir á aldrinum 17–19 ára eru sakaðir um að aðstoða hinn 19 ára gamla Johannes Kongsnes Natland sem var dæmdur fyrir að leggja á ráðin um manndráp í Bretlandi.Natland var sakaður um að hafa ferðast til Bretlands í mars 2025 í þeim tilgangi að skjóta mann til bana gegn greiðslu sem jafngilti þremur og hálfri milljón íslenskra króna. Hann var handtekinn með vopn í fórum sínum áður en hann fékk tækifæri til að láta til skarar skríða.Drengirnir þrír sem voru dregnir fyrir dóm í Noregi í dag neita allir sök.Einn þeirra er sakaður um að hafa milligöngu um þátt Natlands í ætluðu launmorði, annar er sagður hafa fylgt honum til Bretlands og hvatt hann til að
Þrír unglingsdrengir sakaðir um aðild að ráðabruggi um launmorð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd