Slökkvistarf í Toppstöðinni í Elliðaárdal gekk vel í gær þó að erfitt hafi reynst að finna eldsupptök vegna reyks, segir slökkviliðsstjóri. Áætlanir um starfsemi í húsinu breytast ekki þrátt fyrir brunann, að sögn eiganda þess, og til stendur að opna í lok árs 2028.Töluverður eldur kom upp í Toppstöðinni í Elliðaárdal á sjötta tímanum í gær. Birgir Finnsson, settur slökkviliðsstjóri á höfuðborgarsvæðinu, segir eldinn hafa farið í timburklæðningu inni í húsinu, en hann hafi verið staðbundinn„Við fórum inn á tveimur stöðum með slöngur og svo tók svolítinn tíma að finna eldsupptökin vegna þessa mikla reyks en svo gekk það bara vel og við vorum ekki lengi að því. Hins vegar tók mjög langan tíma að reykræsta.“ ASBEST SKAPAÐI EKKI HÆTTU VIÐ SLÖKKVISTARF Toppstöðin, sem er gömul aflstöð, er ei