Þurfa ekki umhverfismat fyrir gagnaver

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hafnaði í síðustu viku kröfu Náttúrugriða um að ekki þyrfti umhverfismat vegna byggingar gagnavers í Reykjanesbæ. Verne Global hyggst reisa þar gagnaver með 20.000 fermetra gólfflöt.Úrskurðarnefndin vísaði til mats Náttúrufræðistofnunar sem taldi ekki að framkvæmdin hefði umtalsverð umhverfisáhrif. Svæðinu hefur þegar verið raskað og þar eru meðal annars 15.000 fermetrar af malbiki sem þarf að fjarlægja.Helstu áhrifin eru á hljóðvist og ásýnd. Hávaðinn er að mestu bundinn við það þegar varaaflstöð er keyrð en það verður í undantekningartilfellum.Horft yfir Reykjanesbæ.RÚV / Arnhildur Hálfdánardóttir
Þurfa ekki umhverfismat fyrir gagnaver

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd