Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að áhyggjur um að gervigreind geti tortímt mannkyni séu þvættingur og samsæri og hafnar tillögum um að hægja á þróun hennar. Í röð færslna á Truth Social segir hann meðal annars að áhyggjuraddir innan úr gervigreindarheiminum séu samsæri landráðamanna og svikara. Undanfarið hafa yfirlýsingar bæði fyrrverandi starfsmanna stærstu gervigreindarfyrirtækja heims og hæstráðenda þessara sömu fyrirtækja valdið titringi innan þessa ört vaxandi geira. Fyrir nokkrum dögum sagði fyrrverandi starfsmaður hins bandaríska Anthropic, sem á og rekur gervigreindarforritið Claude og milljónir nota daglega, að hann teldi að minnsta kosti 10% líkur á að gervigreind tortími mannkyni innan áratugar. Á laugardag birti Dario Almodei, forstjóri og annar stofnenda Anthropic grein,