Bretarnir hugsanlega að selja sig út úr HS Orku

Helmingshlutur í HS Orku gæti gengið kaupum og sölum á næstunni því breska félagið Ancala Partners, sem á 50% í fyrirtækinu, hefur hafið undirbúning að mögulegri sölu. Innherji á Vísi greinir frá þessu og segir að viðskiptin, ef af þeim verður, myndu hljóða upp á tugi milljarða króna. Breski sjóðurinn Ancala Partners eignaðist helmingshlut í HS Orku á móti lífeyrissjóðum 2019. Þá keypti Jarðvarmi, félag 14 lífeyrissjóða, 54% hlut í HS Orku af kanadíska fyrirtækinu Innergex á 37 milljarða króna og 12,7% hlut ORK. Fyrir áttu lífeyrissjóðirnir 33,4% hlut. Því var allt hlutaféð komið í eigu lífeyrissjóðanna fjórtán sem seldu Ancala Partners helminginn.
Bretarnir hugsanlega að selja sig út úr HS Orku

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd