Engar siglingar yfir Breiðafjörð á meðan Baldur er í slipp

Síðasta áætlunarferð Baldurs um Breiðafjörð verður 5. október en þá fer skipið í slipp og er áætlað að vinnan taki fjórar til sex vikur. Farþegaskipið Ingólfur frá Ísafirði siglir út í Flatey á meðan Baldur er í slipp, en engar áætlunarsiglingar verða yfir fjörðinn, frá Stykkishólmi til Brjánslækjar.Töluvert hringl var á siglingum um Breiðafjörð í sumar þegar sinna þurfti áætlunarsiglingum milli lands og Vestmannaeyja á Baldri. Jakob Björgvin Sigríðarson Jakobsson, bæjarstjóri í Stykkishólmi, segir haust og vor besta tímann til að taka Baldur í slipp.„Við getum heldur ekki verið að taka skipið úr siglingu yfir háveturinn, þá lokast fjallvegir og þá þarf Baldur að vera í siglingum. Við viljum alls ekki að þetta gerist á sumrin, því þá er háannatími í ferðaþjónustu. Það hafa allir skilning á
Engar siglingar yfir Breiðafjörð á meðan Baldur er í slipp

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd