Nú stendur yfir alþjóðleg sýning í Peking í Kína auk fleiri viðburða tengdum varnarmálum þar sem ný her- og öryggistækni er í forgrunni. Þar má meðal annars sjá vopnaða vélhunda, dróna og gagn-drónakerfi, ratsjár, fjarskiptabúnað, hernaðarlega rafeindatækni og ómönnuð kerfi af ýmsu tagi.