Verkáætlun í viðræðum FÍA og Icelandair gekk ekki eftir

Áætlun Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) og Icelandair um að klára kjarasamninga fyrir daginn í dag gekk ekki eftir.Félögin sammæltust um það í júní að vinna eftir verkáætlun ríkissáttasemjara undir friðarskyldu. Markmið hennar var að ljúka viðræðum um endurnýjun kjarasamninga fyrir 15. september.Viðræðurnar eru enn í gangi. Þær hafa að sögn ríkissáttasemjara gengið ágætlega og hann kveðst bjartsýnn. Hvað er friðarskylda? Friðarskylda þýðir að þeir sem eru bundnir af kjarasamningi megi ekki knýja fram breytingar á því sem var samið um í honum með verkfalli.Þetta á við meðan samningurinn er í gildi en friðarskylda fellur úr gildi þegar hann rennur út, nema samið sé um annað.Ástráður Haraldsson segir ekki liggja fyrir hversu langt sé í land í viðræðunum og hefur ekki lagt fram tillögu
Verkáætlun í viðræðum FÍA og Icelandair gekk ekki eftir

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd