Koma hefði mátt í veg fyrir morð á nokkrum ungabörnum, sem hjúkrunarfræðingurinn Lucy Letby var sakfelld fyrir, á Countess of Chester-sjúkrahúsinu í Bretlandi.Letby var sakfelld árið 2023 fyrir að myrða sjö börn á sængurlegudeild sjúkrahússins og fyrir tilraun til að myrða sjö til viðbótar. Hún afplánar 15 lífstíðardóma í fangelsi.Rannsókn á sjúkrahúsinu og þátt þessi og stjórnenda þess í málinu leiðir í ljós að stjórnendur hafi ekki gripið til aðgerða gegn Letby, þrátt fyrir að samstarfsfólk hennar hafi ítrekað reynt að gera þeim viðvart um grunsamlega hegðun hennar. Þá var Letby ekki send í leyfi á meðan alvarlegar ásakanir henni á hendur voru til rannsóknar.Formaður rannsóknarnefndar á vegum yfirvalda segir ómögulegt að vita hversu mörg dauðsföll hefði mátt koma í veg fyrir. Sjúkrahúsið