Samkvæmt heimildum fréttastofu eru þrír starfsmenn á meðferðarheimilinu Vogi komnir í veikindaleyfi eftir að aðalstjórn SÁÁ lýsti yfir stuðningi við framkvæmdastjórn samtakanna á fundi í gær.Það eru fagstjóri, fagstjóri lækninga og fagstjóri sálfélagslegrar meðferðar sem allir unnu á meðferðarheimilinu Vogi.Aðalstjórn SÁÁ kom saman í gær á aukaaðalfundi vegna stöðunnar sem upp er komin innan samtakanna og var vantrauststillaga, sem á sjöunda tug starfsmanna skrifuðu undir, tekin fyrir.Í tilkynningu frá SÁÁ í dag segir að starfsfólki hafi verið gefinn kostur á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Þá lýsti aðalstjórn yfir stuðningi við framkvæmdastjórnina sem miðaði að því að tryggja heilbrigðisþjónustu samtakanna.Starfsmenn fengu í morgun sent bréf frá aðalstjórn þar sem vonast var eftir s