Syntu og sigldu yfir Fossvoginn: „Sumar og sól alla leið“

Ótrúlega kalt en sumar og sól alla leið, sögðu þeir Veigar Hrafn Sigþórsson og Ýmir Sölvason, nemendur í Háskólanum í Reykjavík. Þeir syntu frá smábátahöfninni í Kópavogi yfir á Ylströndina í Nauthólsvík í fylgd Ragnhildar Helgadóttur, rektors HR, og Bryndísar Bjarkar Ásgeirsdóttur, aðstoðarrektors, sem voru á kayak.Sundið var í tilefni af góðgerðarviku skólans þar sem yfir milljón safnaðist fyrir Píeta-samtökin.„Ótrúlega kalt,“ sagði Veigar Hrafn eftir sundið. „Þetta var ótrúlega fínt alla leið, sól og sumar og smá tan kannski,“ sagði Ýmir. Þeim fannst ekki erfitt að synda svona snemma um morgun, þeir eru vanir að fara á sundæfingar klukkan fimm.Ragnhildur sagði þær Bryndísi dást að strákunum. „Þetta eru miklir sundmenn, ofboðslega gaman að sjá þá í action.“
Syntu og sigldu yfir Fossvoginn: „Sumar og sól alla leið“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd