Fjölbreyttur hádegisfréttatími er framundan á Bylgjunni. Þar ber hæst að móðir sem lagði fram kæru gegn starfsmanni leikskóla í Múlaborgarmálinu segir það hafa verið enn eitt áfallið að sjá brotamanninn fyrir utan heimili sitt tæpum fimm mánuðum eftir að maðurinn var fundinn sekur um kynferðisbrot gegn barni. Rætt er við móðurina í fréttatímanum.