Ekki liggur fyrir hvort um árásardróna var að ræða

Orrustuþotur skutu niður dróna í Kaunas-sýslu í Litáen í nótt. Herinn gaf út gula hættuviðvörun vegna drónans og lofthelginni var lokað um tíma af öryggisástæðum.Dróninn flaug inn í lofthelgi Litáens skömmu eftir miðnætti að staðartíma og var strax gefin út hættuviðvörun vegna hans. Um hálftíma síðar var dróninn skotinn niður í dreifbýli nærri Pratkūnai af orrustuþotum.Forseti Litáen, Gitanas Nausėda, greindi frá því í færslu á X að dróni hefði verið skotinn niður af orrustuþotum Atlantshafsbandalagsins. Flugher Ítala sinnir um þessar mundir loftrýmisgæslu í Litáen á vegum Atlantshafsbandalagsins. Hættuviðvörun var aflétt og lofthelgin opnuð að nýju.Lögreglan og herinn vinna að rannsókn málsins. Brak drónans fannst í nótt, en ekki er vitað hvort um árásardróna var að ræða.Tegund, uppruni d
Ekki liggur fyrir hvort um árásardróna var að ræða

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd