Rússar skutu blysum að danskri herþyrlu

Áhöfn rússneskrar freigátu skaut tveimur blysum að þyrlu danska hersins sem fylgdist með ferðum skipsins. Annað blysið fór nærri þyrlunni en olli ekki skaða.Freigátan var á siglingu á alþjóðlegum siglingaleiðum milli Sjálands í Danmörku og Þýskalands, suður af Gedser.„Blysum var skotið að einni af Fennec-þyrlum flughersins þegar hún sinnti reglulegu eftirliti og myndaði rússneska freigátu sem var á alþjóðlegu hafsvæði út af Geser,“ sagði danski herinn í tilkynningu.Blysunum var skotið að þyrlunni seint í gær.Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, brást við tíðindunum í dag og sagði að þetta væri hluti af mynstri sem hefði teiknast upp um alla Evrópu. Rússar yrðu sífellt árásargjarnari og öruggari með sig og hertu á fjölþáttahernaði gegn Evrópu. Hún sagði að Rússar vildu ögra og rey
Rússar skutu blysum að danskri herþyrlu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd