13 særðust í flugskeyta- og drónaárásum Húta í suðurhluta Sádí-Arabíu í nótt. Hútar hafa einnig gert árásir á olíuinnviði í Sádí-Arabíu. Yfirvöld í Sádí-Arabíu hafa hótað því að svara fyrir árásirnar.Hútar hertóku ströndina við Rauðahaf í síðustu viku og Bad al-Mandab-sund, sem er sundið fremst við Rauðahaf. Átök milli Húta og stjórnarhersins í Jemen, sem nýtur stuðnings Sádi-Araba, hafa blossað upp að nýju, en pattstaða er komin upp á milli Bandaríkjanna og Írans.Alþjóðlega fólksflutningastofnunin sagði í gær að ríflega 94.000 manns hefðu neyðst til að flýja heimili sín vegna átakanna í Jemen.Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í færslu á Truth Social að íranska þjóðin vildi ná samningi eins fljótt og hægt væri en hann ætti enn eftir að taka afstöðu um hvort Bandaríkin geri það, hann sé