Þingmenn eru ekki einu fastagestirnir sem birtast við upphaf þings

Það voru ekki aðeins þingmenn sem sneru aftur þegar Alþingi var sett í síðustu viku. Þá sneri líka aftur fjöldi lagafrumvarpa og þingsályktunartillagna frá fyrri árum sem hafa ekki náð fram að ganga. Langlífasta frumvarpið er nú flutt í 13. skipti.Þingsköp kveða á um að frumvörp og þingsályktunartillögur sem Alþingi samþykkir ekki fyrir þinglok falli niður þegar þingi er slitið. Því er ekki hægt að taka þau upp og halda áfram með vinnsluna eins og ekkert hefði í skorist á fyrra þingi. Flytja þarf málin á ný og hefst þá öll umræða og nefndavinnsla upp á nýtt.Þetta verður til þess að sum frumvörp eru flutt aftur og aftur áður en þau eru annaðhvort samþykkt eða daga uppi. Og þar sem stjórnarfrumvörp ráðherra eru mun líklegri til að verða að lögum en þingmál einstakra þingmanna þá birtast þing
Þingmenn eru ekki einu fastagestirnir sem birtast við upphaf þings

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd