Blaðamaður í útlegð handtekinn af ICE-liðum

Blaðamaður frá Níkaragva sem hefur verið í útlegð í Bandaríkjunum var handtekinn af ICE-liðum í Bandaríkjunum í gær. Ekki er vitað hvar hann er í haldi.Blaðamaðurinn, Luis Galeano, flúði heimaland sitt Níkaragva árið 2018. Hann var gagnrýninn á ríkisstjórn landsins og starfaði áfram við blaðamennsku eftir að hann kom til Bandaríkjanna. Galeano, auk 93 stjórnarandstæðinga, var sviptur ríkisborgararétti sínum árið 2023 af ríkisstjórn Níkaragva fyrir að hafa gagnrýnt yfirvöld. Yfirvöld á Spáni veittu honum síðar ríkisborgararétt.Galeano var í vinnu sem sendill hjá Uber og beið niðurstöðu hælisumsóknar sinnar í Bandaríkjunum þegar ICE-liðar handtóku hann í gær. Hann á yfir höfði sér að vera sendur úr landi til Níkaragva. YFIR MILLJÓN NÍKARAGVABÚA HEFUR FLÚIÐ LAND VEGNA EINRÆÐISSTJÓRNARINNAR
Blaðamaður í útlegð handtekinn af ICE-liðum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd