Orrustuþotur skutu niður dróna í Kaunas-sýslu í Litáen í kvöld.Litáíska ríkisútvarpið greinir frá.Dróninn flaug inn í lofthelgi Litáens skömmu eftir miðnætti að staðartíma og gefin var út gul hættuviðvörun vegna drónans og lofthelginni var lokað um tíma. Um hálftíma síðar var hann skotinn niður í dreifbýli í Kaunas-sýslu af orrustuþotum sem eru við loftrýmisgæslu í Litáen á vegum Atlantshafsbandalagsins.Lögregluyfirvöld og herinn vinna að rannsókn málsins. Uppruni drónans og flugleið er óþekkt en talið er hugsanlegt að dróninn hafi flogið til Litáen frá Belarús.