Umhverfisstofnun Bandaríkjanna (Environmental Protection Agency, EPA) ætlar að afnema takmarkanir á útblæstri gróðurhúsalofttegunda frá kola- og gasorkuverum. Takmarkanirnar voru settar í forsetatíð Joe Bidens. Einnig verður komið í veg fyrir að settar verði frekari reglugerðir um losun frá orkuverum. EPA segir að stofnunin hafi ekki lagaheimild til að setja slíkar reglur.Þetta var tilkynnt á fundi orkuráðherra G20-ríkjanna í Houston í dag.Lee Zeldin, forstjóri EPA, segir að afnám reglugerða muni gera Bandaríkjunum kleift að koma sér upp nýjum innviðum til að mæta síaukinni orkuþörf. Þá muni áætlanir EPA spara raforkuiðnaðinum 370 milljónir bandaríkjadala sem annars hefðu farið í að framfylgja reglugerðum.Raforkuiðnaðurinn ber ábyrgð á nærri fjórðungi alls útblásturs gróðurhúsalofttegunda