Forsætisráðherra segir ríkisstjórnina ekki hafa nein áform um að draga formlega til baka aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu. Staðan nú sé nákvæmlega sú sama og fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu.Frá því niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið lá fyrir hefur stjórnarandstaðan krafið ríkisstjórnina svara um formlega stöðu aðildarumsóknarinnar – hvort Ísland teljist enn til umsóknarríkis og hvort umsóknin verði formlega dregin til baka.Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, notaði fyrsta fyrirspurnatíma þingvetrarins til að biðja forsætisráðherra um að staðfesta að Ísland væri ekki lengur umsóknarríki að Evrópusambandinu.Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sagði að þeir sem hefðu kosið nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni hefðu meðal ann