Eldur kviknaði í Toppstöðinni í Elliðaárdalnum á sjötta tímanum í kvöld. Það tók rúman klukkutíma að ráða að niðurlögum eldsins.Toppstöðin, sem er yfirgefið verksmiðjuhúsnæði, er einangrað með asbest. Mikill reykur barst frá húsinu og yfir Fossvoginn. Lárus Steindór Björnsson varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu segir að aðeins hafi eldur borist í lítinn hlusta asbestklæðningar hússins og er því er ekki talin þörf á frekari aðgerðum. Slökkviliðið vinnur að málinu með heilbrigðiseftirliti ReykjavíkurÍvar Fannar Arnarsson, tökumaður RÚV var á vettvangi.Eldur kviknaði í Toppstöðinni í Elliðaárdalnum í kvöld. Mikill reykur barst frá húsinu sem er einangrað með asbesti. Eldur barst í lítinn hluta klæðningarinnar og telur slökkviliðið ekki þörf á frekari aðgerðum. HÚSIÐ SELT Í FEB