Báðar þyrlur Landhelgisgæslunnar voru kallaðar til í útkall langt á hafi úti í dag. Um var að ræða veikindi skipverja um borð í norsku línuveiðiskipi sem statt var töluverðan spöl norðvestur af landinu. Þetta er annan daginn í röð sem Gæslan er kölluð langt á haf út.