Atkvæðagreiðsla félagsmanna Flugvirkjafélags Íslands og lauk í hádeginu. Niðurstaðan var afgerandi, verkfallsboðun var samþykkt með áttatíu og átta komma þremur prósentum greiddra atkvæða.Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins er ekki bjartsýnn á að samningar náist milli flugvirkja og Icelandair, enda sé félagið ekki í neinni stöðu til að mæta kröfum flugvirkja.„Þetta er mjög þröng staða vegna þess að það ber mikið í milli samningsaðilana og mér líst bara ekkert allt of vel á stöðuna.“Flugvirkjar hjá Icelandair fara að óbreyttu í verkfall frá og með miðvikudeginum í næstu viku. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir ekki hægt að mæta launakröfum flugvirkja. KRÖFURNAR LANGT UMFRAM SVIGRÚM FÉLAGSINS Ótímabundin verkföll flugvirkja hjá Icelandair hefjast á miðn