Játaði að hafa byrlað einkonu sinni og nauðgað henni

Breskur maður á sjötugsaldri hefur játað að hafa byrlað eiginkonu sinni ólyfjan og nauðgað henni í yfir tvo áratugi. Maðurinn játaði á sig sextíu brot á rúmlega tuttugu ára tímabili.Hann nýtur nafnleyndar til að vernda friðhelgi eiginkonunnar og bjó í Stockport nærri Manchester á Englandi. Maðurinn átti að koma fyrir dóm ásamt tólf öðrum mönnum sem eru ákærðir fyrir að hafa lagt á ráðin um að misnota konuna meðan hún var meðvitundarlaus.Þeir eru á aldrinum 28 til 73 ára og neita allir sök. Þrettándi maðurinn hefur þegar játað að hafa byrlað og nauðgað henni. Búist er við að réttarhöldin fari fram á næstu vikum.Maðurinn játaði yfir sextíu brot í dag sem náðu allt aftur til 2004, þar á meðal nauðgun og að hafa deilt nektarmyndum af henni. Eiginkonan var í dómsal í dag þegar maðurinn játaði.
Játaði að hafa byrlað einkonu sinni og nauðgað henni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd