Enginn Tækniskóli í Fjörðinn - bærinn lofaði upp í ermina á sér

Hætt hefur verið við að byggja nýjan Tækniskóla í Hafnarfirði. Bærinn stóð ekki við skuldbindingar sínar um að útvega skólanum lóð.Í sameiginlegri yfirlýsingu Hafnarfjarðarbæjar og Tækniskólans segir að bænum hafi ekki tekist að afhenda skólanum lóðina sem reisa átti skólann á og óvíst af því gæti orðið.Bærinn og skólinn séu sammála um að ekki sé hægt að bíða lengur með verkefnið og nú verði leitað að öðrum stað fyrir skólann.Áform um að reisa nýjan Tækniskóla við Flensborgarhöfn í Hafnarfirði voru fyrst kynnt fyrir fimm árum.Þetta var svo endanlega staðfest fyrir tveimur árum og í febrúar var ákveðið að flýta fyrir framkvæmdum og byggja þennan 30.000 fermetra skóla í einum áfanga. Deiliskipulag vegna skólans var svo samþykkt í sumar.Verklok voru fyrirhuguð haustið 2029. Skólinn starfar í
Enginn Tækniskóli í Fjörðinn - bærinn lofaði upp í ermina á sér

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd