Héraðsdómur Oslóar hefur úrskurðað að innheimtufyrirtæki hafi ekki haft heimild til að leggja á aukaleg gjöld vegna bílastæðanotkunar. Formaður Neytendasamtakanna telur að hægt sé að heimfæra norska dóminn upp á Ísland.Norsku neytendasamtökin höfðuðu hópmálsókn gegn innheimtufyrirtækinu Riverty sem sá um innheimtu fyrir ýmis bílastæðafyrirtæki og höfðu betur. Fyrirtækið hafði rukkað meira fyrir innheimtu reikninga en það kostaði að gefa þá út. Það er óheimilt samkvæmt norskum lögum. SEGJA DÓMINN GETA VERIÐ FORDÆMISGEFANDI Félag íslenskra bifreiðaeigenda telur að dómurinn gæti verið fordæmisgefandi á Íslandi því hann byggi á reglum sem eigi sér hliðstæðu í íslensku regluverki.Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, telur einnig að íslensku vangreiðslugjöldin séu sambærileg við norsk