25 milljónir króna fundust í þrotabúi veitingamannsins Einars Sturlu Möinichen en lýstar kröfur námu alls 244 milljónum króna. Af milljónunum 25 fóru 15 í skiptakostnað en þrotabúið var tekið til skipta árið 2020 og ágreiningsmál við skiptin rataði alla leið í Hæstarétt.