Þórarna Gró Friðjónsdóttir nýr forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands

Þórarna Gró Friðjónsdóttir hefur verið skipuð forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands (HSA) frá 1. október til næstu fimm ára, af Ölmu Möller heilbrigðisráðherra. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.Þórarna Gró er nýr forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands.Ljósmynd / StjórnarráðiðHæfnisnefnd mat Þórörnu mjög vel hæfa til að gegna embættinu. Hún hefur starfað við HSA frá 2018, fyrst sem rekstrarstjóri og síðan sem framkvæmdastjóri mannauðs. Þórarna var settur forstjóri frá 1. júní.Nefndin benti sérstaklega á í umsögn sinni mikla þekkingu Þórörnu á áætlanagerð, fjármálum hins opinbera, á opinberri stjórnsýslu og reynslu á sviði rekstrar og stjórnunar mannauðsmála, í umsögn sinni.
Þórarna Gró Friðjónsdóttir nýr forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd