Tillögur Sjálfstæðisflokksins um að taka RÚV af auglýsingamarkaði og takmarka starfsemina við rekstur Rásar 1 og menningarlegt hlutverk byggjast á borgaralegum hægrisjónarmiðum, segir Jens Garðar Helgason, varaformaður flokksins. Flokkurinn vilji afnema útvarpsgjaldið og veita RÚV einn milljarð króna á ári af fjárlögum.