Gera má ráð fyrir því að rúm tíu þúsund börn búi á heimilum sem eru undir lágtekjumörkum. Það samsvarar um 12,6 prósentum barna á Íslandi. Hlutfallið hefur lækkað frá því árið 2000 þegar það var 16,5 prósent. Hlutfall barna af erlendum uppruna sem býr við fátækt hefur á sama tíma margfaldast. Staða einstæðra foreldra er enn afar viðkvæm.