Fyrstu ráðherrar Skotlands, Norður-Írlands og Wales undirrituðu í dag sameiginlega yfirlýsingu um sjálfsákvörðunarrétt þjóðanna. Í fyrsta sinn eru sjálfstæðissinnar við völd í öllum þessum þremur löndum.Í yfirlýsingunni segir: „...þjóðir okkar eru með rétt til sjálfsákvörðunar. Engin stjórnvöld í Westminster hafa rétt til þess að kæfa lýðræði okkar eða grafa undan þeirri reglu að íbúar hér ráða eigin framtíð.“Fundir þessara leiðtoga eru nokkuð fátíðir. Allir vilja þeir, leiðtogar Skoska þjóðarflokksins, Plaid Cymru í Wales og Sinn Féin á Norður-Írlandi, ganga úr ríkjasambandi við Bretland. Skiptar skoðanir eru þó milli landanna um hvenær og með hvaða hætti það skuli gert. „Þau skilaboð gætu ekki verið skýrari,“ segir jafnframt í yfirlýsingunni, „...að tími Westminster er á enda“.Leiðtogarn