Ungi maðurinn sem varð Bryndísi Klöru Birgisdóttur að bana aplánaði innan við einn þriðja af fangelsisrefsingu sinni í lokuðu úrræði á vegum barnaverndaryfirvalda. Skilyrði þess að afplána refsingu á Vernd er að hafa afplánað minnst einn þriðja refsingar í fangelsi. Fangelsismálastofnun túlkar reglur þess efnis sem svo að miða skuli við þann tíma sem fangi hefði fengið reynslulausn, ekki heildarfangelsisrefsingu.