Rótin – Félag um velferð og vellíðan kvenna vill að embætti landlæknis geri ítarlega skoðun á heilbrigðisþjónustu SÁÁ vegna þess sem það kallar kerfisleg álitaefni í meðferð við vímuefnavanda. Þetta kemur fram í erindi sem Rótin sendir til embættis landlæknis.Félagið vill meðal annars að landlæknir meti hvort stjórnskipan SÁÁ geri heilbrigðisstarfsmönnum kleift að uppfylla lögbundnar skyldur sínar, kalli eftir heildstæðri lýsingu á meðferðarstefnu SÁÁ og skýri hvaða lágmarkskröfur embættið gerir til þverfaglegra teyma þar sem áfengis- og vímuefnaráðgjafar starfa.„Rótin telur mikilvægt að núverandi kreppa hjá SÁÁ verði ekki afgreidd sem tímabundið stjórnunar- eða starfsmannamál. Hún gefur tækifæri til að skoða grundvallaratriði í íslensku meðferðarkerfi við vímuefnavanda,“ segir í erindinu.