Vilja réttir á skrá yfir lifandi menningararf

Bændur halda til rétta í dag og næstu vikur. Þjóðfræðingur segir réttirnar lifandi menningararf sem eigi að varðveita en fækkun sauðfjár hefur áhrif á hefðirnar. Á Rannsóknasetri Háskóla Íslands á Ströndum eru þjóðfræðingar að rannsaka réttir fyrr og nú.Jón Jónsson þjóðfræðingur segir rannsóknina hafa komið til þegar bandarískur þjóðfræðingur að nafni Rosa Thornley hjá Utah-háskóla hafi haft samband. Hún hefur myndað réttir á Íslandi um árabil og hafði áhuga á þróun mannvirkjanna.Rannsóknasetrið í þjóðfræði og Sauðfjársetrið á Ströndum lögðu í rannsóknina í samstarfi við Thornley og jafnframt var ákveðið að rannsaka félagslegu hefðina að fara í réttir á haustin.Jón segir réttir eiga fullt erindi á lista Unesco yfir lifandi menningararf, líkt og sundmenningin. „Okkur langar að setja á íslen
Vilja réttir á skrá yfir lifandi menningararf

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd