Bauð nær milljarð í jarðvinnuframkvæmdir við nýtt fangelsi á Stóra-Hrauni

Sjö fyrirtæki buðu í jarðvinnuframkvæmdir vegna nýs fangelsis sem á að fara að byggja á jörðinni Stóra-Hrauni skammt frá fangelsinu á Litla-Hrauni á Eyrarbakka í Sveitarfélaginu Árborg. Borgarverk ehf. á Selfossi fékk verkið vegna jarðvinnuframkvæmda og fleiri atriða fyrir tæpan milljarð króna.Nýja fangelsið verður öryggisfangelsi fyrir 128 fanga. Verkefni Borgarverks felur meðal annars í sér aðstöðusköpun, uppsetningu vinnubúða, vegagerð, lagningu veitna og rafstrengja og jarðvinnu í fyrsta áfanga.Samkvæmt upplýsingum frá stjórnarráðinu verður framkvæmd byggingarinnar skipt í tvo áfanga og er áætlaður kostnaður við þann fyrri 17,8 milljarðar. Þar verður lögð áhersla á almenn fangarými sem rúma 56 fanga, skólabyggingu, eina vinnustofu, vöruhús og hliðarbyggingu. Í seinni áfanganum verður ö
Bauð nær milljarð í jarðvinnuframkvæmdir við nýtt fangelsi á Stóra-Hrauni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd