Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands og samninganefndar félagsins, segir ummæli Boga Nils Bogasonar, forstjóra Icelandair, vegna atkvæðagreiðslu félagsmanna um verkfall vera varhugaverð og óábyrg. Hann vísar sérstaklega til orða Boga sem sagði í fréttum á laugardag að það væri alvarlegt að fagstéttir gætu lokað landinu með verkfallsaðgerðum.Atkvæðagreiðslu félagsmanna um verkfall hjá Icelandair lýkur í hádeginu. Bogi sagði í fréttum að það kæmi upp grafalvarleg staða ef fólk færi í verkföll og nær lokaði landinu. Hann sagði flugvirkja jafnframt hafa fengið sömu hækkanir og aðrir síðustu ár.Óskar svarar Boga í færslu á vef Flugvirkjafélagsins og lýsir vonbrigðum sínum með framgöngu og yfirlýsingar hans meðan flugvirkjar kjósa um verkfall. Hann hafnar fullyrðingum Boga um launa