Fyrirhugaðri þriggja prósenta hækkun á vörum SS verður frestað fram í janúar og vörur sem áttu að hækka um fimm prósent hækka í staðinn um þrjú prósent. Forsvarsmenn fyrirtækisins segja að með þessu bregðist þeir við áskorun þriggja stéttarfélaga sem báðu félagið til að leggja sitt af mörkum í baráttunni gegn verðbólgu og til að koma í veg fyrir uppsögn kjarasamninga.VR, Landssamband íslenskra verzlunarmanna og Rafiðnaðarsambandið fóru þess á leit við SS fyrir nokkrum dögum að fyrirtækið drægi til baka eða endurskoðaði verðhækkanir sem það var búið að kynna. Með þessu sögðu verkalýðsfélögin að SS gæti lagt sitt af mörkum til að ekki kæmi til uppsagnar kjarasamninga.Í tilkynningu frá SS segir að til hafi staðið að hækka verð um þrjú til fimm prósent á næstu dögum. Með þessu hafi fyrirtækið