Húsnæði björgunarsveitarinnar Ægis í Garði til sölu

Björgunarsveitin Ægir í Garði setti nýverið húsnæði sitt í Þorsteinsbúð á sölu. Húsið fékk björgunarsveitin að gjöf fyrir um 30 árum síðan frá ábúendum á Gauksstöðum í Garði og útgerðarmanninum Þorsteini Jóhannssyni.„Sem var mjög hliðhollur sveitinni og var formaður hennar í mörg ár,“ segir Ingólfur Einar Sigurjónsson formaður Ægis.Hann segir stöðu sveitarinnar almennt góða en viðhald á húsnæðinu sé bæði tímafrekt og kosti mikla peninga enda hátt í 2.000 fermetrar. Húsnæðið hafi skipt sköpum í starfi sveitarinnar í gegnum árin en nauðsynlegt sé að skoða alla möguleika.„Við sjáum bara fram á það að ef við höldum þessu áfram erum við ekki að fara að ná í skottið á okkur með því að veita húsinu það viðhald sem það þarf,“ segir Ingólfur.„Tekjur okkar og sjálfboðaliða eru bara ekki nægilegar þa
Húsnæði björgunarsveitarinnar Ægis í Garði til sölu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd