Magdalena Andersson líklega forsætisráðherra að nýju – Hver er hún?

Allt bendir til þess að Magdalena Andersson, leiðtogi Jafnaðarmannaflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra Svíþjóðar, endurheimti sæti sitt sem leiðtogi landsins. Flokkur hennar og samstarfsflokkar í stjórnarandstöðu eru langt komnir með sigur í þingkosningunum í landinu í gær og setjast líklega að ríkisstjórnarborðinu, þrátt fyrir að Jafnaðarmannaflokkurinn hafi fengið sína verstu kosningu í 100 ár. Magdalena Andersson varð forsætisráðherra Svíþjóðar árið 2021, fyrst kvenna, eftir leiðtogaskipti í Jafnaðarmannaflokknum. Stefan Löfven vék þá úr sæti formanns og Andersson tók við. Verði hún forsætisráðherra núna verður það því í fyrsta sinn sem hún sest í þann stól í kjölfar kosningasigurs. Andersson sat í tæpt ár áður en rauðgræna blokkin laut í lægra haldi í kosningum fyrir þeirri bláu.
Magdalena Andersson líklega forsætisráðherra að nýju – Hver er hún?

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd