Kaja Kallas, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, segir að árás Rússa á lest nærri landamærum Póllands og Úkraínu hafi verið tilraun til að hræða Vesturlönd. Rússar réðust á lestina skömmu eftir að fjöldi vestrænna áhrifamanna fór um í annarri lest á sömu leið.Kallas sagði að Rússar hefðu augljóslega verið að reyna að hræða Vesturlöndin frá því að styðja við bakið á Úkraínu. Hún hvatti vestræn ríki til að láta árás Rússa hafa þveröfug áhrif.Kaja Kallas.EPA / BRYAN MEADE