Írönsk stjórnvöld kröfðust í dag útskýringa frá austurrískum stjórnvöldum vegna ákvörðunar þeirra um að hleypa yfirmanni kjarnorkumála ekki inn í landið.Mohammad Eslami ætlaði að mæta á ársfund Alþjóðakjarnorkustofnunarinnar í Vín, höfuðborg Austurríkis, ásamt sendinefnd Írans. Ekkert varð þó af því þar sem Austurríkismenn neituðu að veita þeim vegabréfsáritun. Íranskir fjölmiðlar sögðu frá því í dag að Bandaríkjamenn hefðu sett sig upp á móti því að Mohammad Eslami fengi að mæta á ráðstefnuna. Mohammad Eslami.EPA / EVGENIA NOVOZHENINA / POOL